ATH. Allir Kalkpokar á gólfið

15/12/2011 - Birtist í: Klifurhúsið

Til að bæta andrúmsloftið, sem hefur verið frekar þvingað undanfarið og auðvelda þrif, ætlum við að prufa að taka upp “kalkpokar á gólfið” regluna sem er vel þekkt í klifurhúsum útí heimi.

Svona fer þetta fram:

  • Allir sem eiga kalkpoka sem þeir venjulega binda um mittið og detta svo á rassinn og búa til risakalkský skulu snarhætta og má vísa úr húsi samstundis, einnig hafa starfsmenn leyfi til að klippa kalkpoka af fólki..
  • Kalkpokar verða framvegis geymdir á brúna borðinu eða raðað snyrtilega á gólfið
  • Minnum líka á að laust kalk er ekki leyft í húsinu, aðeins kalkkúlur.
Myndin er sviðsett

Myndin er sviðsett

Með fyrirfram þökk

Klifurhúsið

  1. En en en en..?? Jæja ok, góð regla!

    Skrifað af Örvar Dóri Rögnvaldsson
    - Reply
  2. Fín regla. Mig langar einnig að koma með tvær ábendingar sem snúa að því að gera klifurhúsið að fóta- og sokkavænni æfingastað.

    Það mætti kannski skúra gólfið inn í karlaklefanum stöku sinnum. Fótsveppir eru fljótir að grassera í búningsklefum sem ekki eru þrifnir og svo berst sveppurinn ofan í skóna sem eru til leigu öllum til ama. Hins vegar væri voða gott ef hægt væri að setja upp skógrindur við innganginn því þar er allt yfirleitt mjög blautt þegar maður kemur inn og sokkar blotna auðveldlega.

    Annars frábær staður!

    Skrifað af Ólafur
    - Reply
  3. Góð ábending Ólafur. Ég held að gólfið inni á búningsherbergi sé þrifið einusinni á dag. Kannski þyrfti að gera það oftar.

    Skrifað af Arnór
    - Reply
  4. Ég skal klippa minn eigin poka af ef það getur orðið til að bæta loftið. Vil sömuleiðis benda á að útidyrahurðin fellur ekki að stöfum nema henni sé lokað sérstaklega sem verður til þess að gólfið er oft óþarflega kalt a.m.k. þar til nóg kjöt er komið í salinn.

    Skrifað af Jón Gauti
    - Reply

Skrifa...

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*