KLIFURSMIÐJA – workshop
Klifursmiðjur og fyrirlestrar 4. – 9. febrúar
Klifurfélag Reykjavíkur stendur fyrir röð fyrirlestra og klifursmiðja í byrjun febrúar en það er afmælismánuður félagsins sem verður 10 ára. Félagið hefur því fengið til lið við sig finnskan klifrara, Anton Johansson (28) að nafni, sem mun leiða dagskrána. Anton hefur verið atvinnuklifrari í rúman áratug og hefur meðal annars verið Finnlandsmeistari bæði í línuklifri og boulder, er fyrirliði Finnska landsliðsins í boulder og keppti á heimsmeistarakeppninni í grjótglímu 2011. Auk þess er hann íþróttaþjálfari að mennt og ætti því að hafa af mörgu að miðla til íslenskra klifrara.
Klifursmiðjur fyrir 20 ára og eldri
Eru hugsaðir fyrir klifrara sem hafa stundað klifur í nokkurn tíma (klifra V4/5+) og er markmiðið að gefa þeim verkfæri í hendurnar sem hjálpa þeim að halda áfram að bæta sig í íþróttinni. Smiðjan er ókeypis öllum félagsmönnum í Klifurfélaginu sem eiga ½ árs eða árskort. Aðrir geta skráð sig og greitt þátttökugjald sem er 8.000 kr. Athugið að þátttökufjöldi er takmarkaður. Boðið verður upp á tvo hópa sem verða á sitthvorum tímanum en annars er ekki um neinn mun að ræða.
| Hópur 1 | |
| Laugardaginn (4. feb.) | kl. 15:00 – 18:00 |
| Sunnudaginn (5. feb.) Fyrirlestur | kl. 13:00 – 14:00 |
| Mánudaginn (6. feb.) | kl. 19:00 – 21:30 |
| Hópur 2 | |
| Sunnudaginn (5. feb.) Fyrirlestur | kl. 13:00 – 14:00 |
| Sunnudaginn (5. feb.) | kl. 15:00 – 18:00 |
| Fimmtudaginn (9. feb. | kl. 19:00 – 21:30 |
Klifursmiðja fyrir 13-20 ára
Fyrir unga klifrara sem stefna langt verður líka á boðstólnum þessa vikuna. Þarna er dagskráin sérstaklega sniðin af klifrurum á aldrinum 13 til 20 ára. Eins og hinar smiðjurnar er þessi ókeypis fyrir hálfs- eða árskortshafa auk þeirra sem æfa á skipulögðum æfingum í Klifurhúsinu. Aðrir geta greitt þátttökugjald sem er 6.000 kr. Þátttökufjöldi er einnig takmarkaður á þessa smiðju.
| Hópur 13-20 ára | |
| Laugardaginn (4. feb.) | kl. 09:00 – 12:00 |
| Laugardaginn (4. feb.) Fyrirlestur | kl. 13:00 – 14:00 |
| Sunnudaginn (5. feb. | kl. 09:00 – 12:00 |
SKRÁNING FER EINUNGIS FRAM Í AFGREIÐSLU KLIFURHÚSSINS