Nýtt ár og nýjungar
Klifurfélag Reykjavíkur óskar öllum klifrurum gleðilegs nýs árs og vonar að árið verði öllum gott og gjöfult.
Við boðum ýmsar nýjungar og breytingar á nýju ári þar á meðal formlegan styrktarsjóð klifurfélagsins sem mun styrkja metnaðarfull klifurverkefni innanlands sem utan. Allir geta sótt um styrk en nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknarferlið má finna neðst á síðunni undir Klifurfélag Reykjavíkur eða með því að ýta hér.
Einnig verður hækkun og aðrar breytingar á almennri verðskrá í febrúar, en hún hefur haldist eins frá opnun Klifurhússins sem má nú teljast afrek útaf fyrir sig.
Að lokum munu umgengnisreglur í húsinu verða hertar, vegna mikillar aðsóknar í húsið og til að koma til móts við reglulega iðkendur. Þetta verður gert með því að takmarka hópa og hækka aldurstakmark í húsið sem verður auglýst nánar síðar. En námskeið verða áfram fyrir 8-100 ára, og er skráning hafin fyrir 13-16 ára. Hin námskeiðin munu hefjast í febrúar og mun skráning opna um miðjan janúar.
Ást og friður
KH
