N4: 16 plús Handbók
Forsíða » Námskeið & æfingar » N4: 16 plús » N4: 16 plús Handbók
Grunnnámskeið 16 plús
Handbók 2012
Farið er í bæði grjótglímu og línuklifur í námskeiðinu. Í grtjóglímunni er lagður grunnurinn að sjálfstæðum æfingum, hvernig á að æfa klifur í klifurhúsinu og hvað þarf að vita með tilliti til styrktaræfinga, upphitunar og teygja. Línuklifurhlutinn fer í almenna línuvinnu, áttuhnút, að tryggja með túbu, klifur í ofanvaði og leiðsluklifur.
| Tími | Stikkorð | Nánar |
| 1 | Kynning á klifri, klifurhúsinu og búnaði | Línur, áttuhnútur, túbur, tvistar, karabínur. Grjótglíma – hvítar leiðir, upphitun, teygjur, reglur í klifri og klifurhúsinu. Línuklifur: toprope og umgengni og frágangur línu. |
| 2 | Grjótglíma / línuklifur | Grjótglíma: Merktar leiðir, búa til leið, skrúfaðir fætur, að fyrirbyggja meiðsli / Leiðsluklifur, að tryggja með túbu og leiða |
| 3 | Grjótglíma / línuklifur | Grjótglíma: Puttabretti, fóta og handatækni, grip., að byggja upp æfingu /Leiðsluklifur, að tryggja með túbu og leiða |
| 4 | Línuklifur í klifurveggnum hjá Björk hafnarfirði | Allir tryggja með túbu og leiða leið. |
Aukatímar hverrar viku vinna svo áfram í grjótglímuhlutanum.