Starfsmenn

Forsíða » Klifurhúsið – upplýsingar » Starfsmenn

Stefanía Ragnarsdóttir

Starfar sem rekstrarstjóri auk þess sem hún leiðbeinir hópum og á námskeiðum. Hún er einnig listrænn stjórnandi hússins og hannar fatnað, plaköt og veggi.

Andri Már Ómarsson

Yfirþrautasmiður og íslandsmeistari í uppsetningu klifurleiða 2011, hann er eini starfsmaðurinn sem hefur verið útnefndur dreki mánaðarins fyrir yfirburða góð störf. Andri stekkur hæst allra klifrara  og er einnig þekktur fyrir að vera aldrei tæpur og sem gaurinn sem í skítuga bolnum..

Andri er líka bangsi klifurhússins og öllum er velkomið að knúsa hann eftir þörfum.

Elmar Orri Gunnarsson

Leiðbeinir með metnaði á námskeiðum fyrir 13-16 ára, ofurskáti sem skipuleggur allt rosa vel, einnig sérstakur rafvirki hússins og hefur yfirumsjón með ljósaperurm. Hann er mjög opin fyrir almennu spjalli og pælingum.

Ásrún Mjöll Stefánsdóttir

Vinnur frábært starf sem þjálfari á námskeiðum, tekur á móti hópum, setur upp leiðir og er einstaklega hjálpsöm og dugleg á vöktum. En tekið skal fram að Klifurhúsið tekur enga ábyrgð á óviðeigandi athugasemdum Ásrúnar við gesti eða óviðeigandi teikningum hennar í sal.

Rakel Marteinsdóttir

Með stærstu byssurnar, hún vinnur í afgreiðslu, leiðbeinir hópum af kappi og setur upp þrautir við og við.

Kristján Þór Björnsson

Vinnur við mót og hitt og þetta, hann er voða sætur.

Valdimar Björnsson

Vinnur við mót og fer til útlanda að klifra eitthvað magnað.

Kjartan B. Björnsson

Fróðasti starfsmaður afgreiðslunnar, hann setur líka upp þrautir og vinnur mót.

Jónas G. Sigurðsson

Vinnur í afgreiðslu, leiðbeinir hópum, setur upp þrautir og klifrar ber að ofan fyrir sérstaka gesti.

Eyþór Konráðsson

Mótstjóri og þrautasmiður

Vikar Hlynur Þórisson

Kennir á námskeiðum 16 plús

Kári Brynjarsson

Vinnur í afgreiðslu og gerir ekki neitt.

Fjóla Ösp Snævarrsdóttir

Ballerína sem vinnur í afgreiðslu, leiðbeinir hópum og setur upp þrautir fyrir liðuga. Hún þurrkar einnig ryk af ljósrofum.

Egill Örn

Þrautasmiður og kærasti Fjólu.