Krakkaklifur Galadrielle 31 júlí, 2024

KRAKKAKLIFUR

BÖRN 5 - 12 ÁRA
Krakkaklifur í Litla Salnum

Krakkaklifurtímarnir eru ætlaðir börnum 5–12 ára sem vilja prófa sig áfram í klifri á eigin hraða. Tímarnir fara fram í Litla salnum okkar í Ármúla 21, sem er sérstaklega hannaður fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem eru að stíga sín fyrstu skref í klifri.

Það er enginn þjálfari á staðnum heldur klifra börnin undir eftirliti forráðamanna. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir að klifra með krökkunum og fá þá frían aðgang og lánaða klifurskó. Einnig eru stólar í salnum fyrir þá sem vilja fylgjast með á meðan börnin prófa sig áfram sjálf.

Klifurskór eru innifaldir í verðinu og eru í hillunum vinstra megin við inngang salarins. Skórnir eiga að sitja þétt, með tærnar alveg fram í, án þess að valda óþægindum. Ef barnið vill ekki nota klifurskó er ekkert mál að klifra á sokkunum en ekki berfætt.

Í salnum er klifrið í fjórum erfiðleikastigum, merkt með lituðum örvum. Gulu leiðirnar eru auðveldastar, svo koma rauðar, grænar og að lokum bláar sem eru erfiðastar.

Nauðsynlegt er að bóka tíma í bókunarkerfinu hér að neðan. Ef þið eruð með gjafabréf þarf ekki að bóka tíma eða láta vita af komu, nóg er að mæta og framvísa því í afgreiðslunni í Ármúla 23.

Hlökkum til að taka á móti ykkur 😊

Krakkaklifur er á þessum tímum:

Föstudaga klukkan 14:00 til 16:00.
Sunnudaga klukkan 14:00 til 18:00. 

REGLUR KRAKKAKLIFURSINS
______

Það er got að vita að Klifurhúsið með tvo klifursali.

Ármúli 23 – Stóri salurinn
Fyrir æfingahópa og almenning 13 ára og eldri. Börn yngri en 13 ára mega klifra með forráðamanni sem er með þriggja mánaða kort eða lengra.

Ármúli 21 – Litli salurinn
Fyrir æfingahópa, skólaheimsóknir, afmæli og krakkaklifur. Foreldrar þurfa ekki að vera með kort í Klifurhúsinu til að klifra þar með börnunum sínum.


4
Scroll to Top