Sumarnámskeið Klifurhússins
Vika af fjöri og ævintýrum!
Sumarnámskeið Klifurhússins er vikulangt námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára. Dagarnir byrja kl. 9 og enda kl. 16 og starfsmenn Klifurhúsins hafa unnið markvisst að því að námskeiðið sé skipulagt með þeim hætti að krakkarnir njóti sín sem best. Húsinu er lokað á meðan námskeiðið er í gangi svo það má með sönnu segja að yfir sumarið tilheyrir Klifurhúsið krökkunum og þeirra leik til kl. 16 alla virka daga.
Á námskeiðinu fá krakkarnir tækifæri til að kynnast klifuríþróttinni á sama tíma og þau njóta þess að vera útivið. Meðal annars þá klifra þau inni og úti, heimsækja dýrin í Húsdýragarðinum og fara í Árbæjarsafnið, taka strætó í Öskjuhlíðina og prófa klettaklifur þar, halda pottapartý og læra að gera hnúta.
Allar helstu upplýsingar um dagskrána og nauðsynlegan útbúnað má finna hér: Handbók foreldra





Stundatafla
12. - 16. júní | 19. - 23. júní | 26. - 30. júní | 3. - 7. júlí | 10. - 14. júlí | 17. - 21. júlí | 24. - 28. júlí | 31. júlí - 4. ágúst | 8. - 11. ágúst | 14. - 18. ágúst |
5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 5 dagar | 4 dagar | 5 dagar |
6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára | 6-7 ára |
8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára | 8-10 ára |
VERÐ OG SKRÁNING
Verð fyrir 4 daga námskeið: 27.440 kr.
Verð fyrir 5 daga námskeið: 34.800 kr.
Í verðinu felst 28/35 klst námskeið, strætóferðir í útiklifur, ferð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, ferð í Árbæjarsafnið, leiga á klifurbúnaði (hjálmur, kalk, klifurbelti og klifurskór) og pylsupartý á miðvikudaginn eða föstudeginum.
Vakin er athygli á því að Klifurfélag Reykjavíkur getur ekki fellt niður eða endurgreitt námskeiðsgjöld eftir að námskeið er hafið.
Greiða má með greiðsludreifingu í allt að 2 mánuði.
Skráning fer fram á Sportabler og þarf að greiða fyrir námskeiðið um leið og gengið er frá skráningu (sjá HÉR leiðbeiningar fyrir Sportabler). A
*20% systkinaafsláttur (afslátturinn reiknast af námskeiðsgjaldi hjá seinna systkininu sem er skráð)
UPPLÝSINGAR
Miðað er við fæðingarár.
6-7 ára voru að ljúka 1 – 2 bekk
8-10 ára voru að ljúka 3 – 5 bekk
Allir dagar byrja og enda í Klifurhúsinu, en námskeiðið fer samt að mestu fram úti í Laugardalnum, Öskjuhlíðinni og nálægum stöðum. Þangað er ýmist gengið eða farið með strætó. Dagarnir byrja á leikjum og klifuræfingum, áður en haldið er í útiklifur eða útileiki.
Kynntar eru helstu gerðir klifuríþróttarinnar: grjótglíman og línuklifrið sem báðar er hægt að stunda bæði innandyra og utan. Þátttakendur kynnast helsta búnaði klifurheimsins á meðan þau njóta útiverunnar og leika sér.
- Námskeiðin hefjast alla daga kl. 9 og eru til 16
- 3 holl af nesti þarf yfir daginn
- Þægilegan íþróttafatnað og útiföt eftir veðri
- Góðan bakpoka
- Sundföt og handklæði fyrir föstudag (fyrir pottapartý í Klifurhúsinu)
- Nánar um dagskrána hér til hliðar í handbókinni