Félagsaðild
Klifurfélag Reykjavíkur
Fyrir þá sem eru ekki að æfa í Klifurhúsinu en vilja vera með!
Félagsgjaldið er greitt einu sinni á ári og er 5.500 kr. og veitir greiðanda aðild að Klifurfélagi Reykjavíkur. Félagsmenn hafa atkvæðarétt á aðalfundum félagsins og geta boðið sig fram í stjórn.
Athugið að samkvæmt 6. grein í lögum félagsins teljast þeir félagsmenn sem eiga gild æfingakort í Klifurhúsinu, eru skráð á skipulagðar æfingar eða greitt hafa félagsgjald. Öll geta orðið félagsmenn í félaginu. Þessi aðild er sérstaklega ætluð fyrir þá sem vilja vera félagsmenn í Klifurfélagi Reykjavíkur en eiga ekki aðild í Klifurhúsinu.
Aðildinn hentar vel fyrir foreldra barna og ungmenna sem æfa í Klifurhúsinu en með henni geta þeir komið að stjórnun félagsins og stefnumótun, hvort sem það er með því að nýta sér atkvæðarétt sinn á aðalfundum eða með stjórnarsetu. Einnig viljum við hvetja alla gömlu klifrana þarna úti sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi félagsins að nýta sér þennan aðildarvalmöguleika.
Skráning í félagið og greiðsla fyrir aðildina fer fram í gegnum Sportablervef Klifurhússins: https://www.sportabler.com/shop/klifurhusid/felagsgjald