Börn undir 13: Krakkaklifur Galadrielle 31 júlí, 2024

KRAKKAKLIFUR

BÖRN 5 - 12 ÁRA
Krakkaklifur í Litla Salnum

Krakkaklifur er ætlað börnum 5–12 ára og fer fram í Ármúla 21 í Litla salnum en hann er hannaður fyrir börn og ungmenni og fyrir fullorðan sem eru að stíga sín fyrstu skref í klifri. Hægt er að bóka tíma hér að neðan eða greiða aðgang í afgreiðslunni í Ármúla 23. Ekki þarf að bóka ef notað er gjafakort, en þá skal framvísa því í afgreiðsluna í Ármúla 23.

Vinsamlegast fylgist með opnunartímum þar sem salurinn getur verið frátekinn vegna keppnishalds. Opnunartímar eru auglýstir á heimasíðunni undir „Heim“ og svo „Fréttir“. Salurinn er í notkun fyrir utan krakkaklifurstímana fyrir æfingahópa, skólaheimsóknir eða afmæli.

Krakkaklifur er á þessum tímum fyrir allt árið 2026:

Föstudaga klukkan 15:30 til 16:30.
Sunnudaga klukkan 14:00 til 18:00. 

Leiguskór eru innifaldir í verðinu og má finna í hillum vinstra megin við inngang salarins. Skórnir eiga að vera þéttir, með tærnar alveg fram í, en ekki svo þröngir að þeir valdi óþægindum.

Í salnum eru klifurleiðir í fjórum erfiðleikastigum sem merkt eru með lituðum örvum. Litirnir eru gulur, rauður, grænn og blár, þar sem gulur er auðveldastur. Gott er að gera ráð fyrir því að flest börn hafi úthald í 40-60 mínútur af klifri.

REGLUR KRAKKAKLIFURSINS

Til upplýsinga – Klifurhúsið er með tvo klifursali.

Salurinn í Ármúla 23 er fyrir æfingahópa og almenning 13 ára og eldri. Til að forráðamaður geti klifrað þar með barni þarf hann að vera með þriggja mánaða kort eða lengra.

Litli Salurinn í Ármúla 21 er fyrir æfingahópa, skólaheimsóknir, afmæli og krakkaklifur og er ekki nauðsynlegt að vera með virkt kort í Klifurhúsinu til að koma og klifra þar með börnum.

4
Scroll to Top