ÍÞRÓTTASKÓLI KLIFURHÚSSINS
FYRIR BÖRN 3 - 6 ÁRA
Íþróttaskóli Klifurhússins er hugsaður fyrir börn á aldrinum 3 til 6 ára. Markmiðið er að ýta undir almennan hreyfiþroska, líkamsvitund, sjálfsöryggi og leikgleði og kynna krökkunum fyrir klifri.
Æfingarnar fara fram á sunnudögum í Litla salnum í Ármúla 21. Salurinn er með mjúkri dýnu undir klifurveggjunum sem tekur vel á móti falli. Foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt á æfingunum þar sem í sumum leikjum er það nauðsynlegt vegna ungs aldur iðkenda.
Námskeiðin Haustönn 2026
Fyrsta námskeiðið hefst 13. september og endar 25. október.
Annað námskeiðið hefst 1.nóvember og endar 13.desember.
3-4 ára – 9:30-10:10
4-5 ára – 10:30-11:10
5-6 ára Hópur 1 – 11:30-12:10
5-6 ára Hópur 2 – 12:30-13:10
Kaffi er á könnunni á meðan æfingum stendur 🙂

