Byrjendagrjótglíma admin 22 október, 2021

BYRJENDAGRJÓTGLÍMA

FYRIR NÝJA KLIFRARA

Lærðu undirstöðurnar í grjótglímu (e. bouldering)

Tveggja vikna byrjendanámskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru búnir að stunda grjótglímu í einhvern tíma en vilja skerpa á grunntækninni. Þjálfarinn fer yfir helstu undirstöðuatriði klifurs, leiðréttir tækni og veitir persónulega leiðsögn út frá getu hvers og eins.  Markmið námskeiðsins er að byggja upp góðan tæknilegan grunn og öðlast færni og sjálfstraust til að halda áfram að æfa eftir að námskeiðinu lýkur.

Innifalið í námskeiðinu:

  • Mánaðaraðgangur að Klifurhúsinu frá fyrsta degi námskeiðsins.
  • Leiguskór, kalk og teip á öllum æfingatímum.
  • 20% afsláttur á skóm á meðan námskeiðinu stendur.

Skráning neðar á síðunni í gegnum Abler en þar má finna daga og tímasetningar næstu námskeiða.

Athugið að námskeiðið er haldið í Klifurhúsinu í Ármúla 23 og er kennsla á grjótglímu þar sem klifrað er upp vegg án línu. Fyrir línuklifur bjóðum við upp á Línu- og leiðsluklifurnámskeið í Miðgarði í Garðabæ.

Byrjenda-boulders
UPPLÝSINGAR

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Góðar upphitunaræfingar fyrir klifur
  • Tæknilegar æfingar á vegg sem hægt er að styðjast við á æfingum eftir að námskeiðinu lýkur til að þróa tækni
  • Hluti eins og að hliðra, flagga og hvar/hvernig á að stíga
  • Nöfn og tegundir á gripum, eins og juggarar, kantar og fl.
  • Hvernig skal lesa leiðir
  • Hvaða teygjur eru mikilvægar eftir æfingar
  • Ásamt fullt af öðrum áhugaverðum og mikilvægum atriðum í grjótglímu
Scroll to Top