ÆFINGAR
Síðasta ár í leikskóla og 1 bekkur í grunnskóla
Jákvæðni og leikur er grunnurinn af æfingunum, og markmiðið að iðkendur öðlist jákvæða reynslu af íþróttaiðkun. Reynt er að þjálfa hreyfiþroska iðkenda með áherslu á styrk, tækni, liðleika og jafnvægi.
Iðkendur læra að umgangast klifursalinn og kynnast hinum mörgu hliðum íþróttarinnar eins og kalknotkun, mismunandi gripum og einnig fá þau að kíkja í línuklifur.
Allar upplýsingar um æfingagjöld, skráningu og stundatöflu má finna hér: Helstu upplýsingar
Foreldrahóp Klifurhússins á FB: Foreldrar barna í KH