Línuklifurnámskeið admin 22 október, 2021

Línu- og leiðsluklifurnámskeið

Fyrir byrjendur

Við mælum með línu- og leiðsluklifursnámskeiði fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í línuklifri og/eða langar að prófa að klifra í línu!

Námskeiðið er kennt í Miðgarði í Garðabænum og er farið yfir grunnatriðin í ofanvaðsklifri (e. top rope) og leiðsluklifri (e. lead climbing). Námskeiðið endar á leiðsluklifursprófi og kennt er með GriGri tryggingartólinu.

Á námskeiðinu verður allur búnaður til staðar svo sem lína, belti og GriGri.
Ef þú þarft leiguskó vinsamlegast sendu tölvupóst á klifurhusid@klifurhusid.is með dags fyrirvara svo að þjálfarinn geti tekið með sér þína stærð. Einnig er hægt að sækja skó sjálfur í Klifurhúsið sama kvöld og námskeiðið hefst án gjalds.

Hvert námskeið er þrjú skipti og kennt er þriðjudaga og fimmudaga klukkan 18:00 til 20:00. Innifalið í námskeiðsgjaldinu er mánaðarkort í Miðgarði sem tekur gildi þegar námskeiðið hefst.

  • Kvöld 1 – Ofanvaðsklifur (e. top rope)
  • Kvöld 2 – Leiðsluklifur (e. lead climbing)
  • Kvöld 3 – Leiðsluklifur og próf

Næstu línu- og leiðsluklifurnámskeið vorönn 2026 hefjast:
___

Frá 3.febrúar til 10.febrúar

___

Frá 17.febrúar til 24.febrúar

___

Mæta verður öll kvöldin og er lágmarksskráning á námskeiðið 6 manns. Ef full skráning næst ekki verður námskeiðið fellt niður. Námskeið fæst aðeins endurgreitt ef iðkandi forfallast vegna slysa eða veikinda.

klifur1
UPPLÝSINGAR

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Hvernig er best að æfa línuklifur.

  • Hvaða búnað þarf til að stunda línuklifur.

  • Hvernig skal nota búnaðinn á öruggan hátt.

  • Æfingar fyrir línuklifur.

  • Þeir sem eru með þriggja mánaða kort eða meira í Klifurhúsið og/eða Miðgarð fá 50% afslátt. Nauðsynlegt er að senda póst á klifurhusid@klifurhusid til að virkja afsláttinn.

Scroll to Top