Æfingahópar Sara Sturludóttir 31 júlí, 2025

ÆFINGAHÓPAR

KLIFURHÚSSINS

Æfingarhópar eru hugsaðir fyrir 18 ára og eldri sem vilja æfa í hóp undir leiðsögn þjálfara.

Boðið er upp á tvo hópa, annars vegar Æfingagrjótglímu og hins vegar Framhaldsgrjótglíma. Æfingagrjótglíma er 6 vikna námskeið þar sem æft er 2x í viku og er fyrir þá sem vilja æfa með þjálfara og bæta getu sína jafnt og þétt. Framhaldsgrjótglíma er fyrir þá sem eru lengra komnir og geta æft meira sjálfir en þó í hóp. Æfingar eru 4x í viku en þjálfari býr þar til æfingaáætlun og er með hópinn 1x í viku.

Æfingagrjótglíma hentar bæði fyrir þá sem eru að koma úr Byrjendagrjótglímu og lengra komna.

V-Æfingahópar
TÍMAR OG HÓPAR
Æfingagrjótglíma

Hentar þeim sem eru búnir að stíga sín fyrstu skref í klifri og þá sem hafa klifrað í einhvern tíma og vilja bæta við sig tækni og styrk.

Æfingarnar verða kl 20:15 til 22:00 á mánudögum og miðvikudögum.

Næstu námskeið vorönn 2026: 

2.febrúar - 15.mars (6 vikur)

13.apríl til 24.maí (6vikur)

Árskortshafar fá 50% afslátt og þurfa að sækja sérstaklega um afsláttinn á æfingagjaldinu með því að senda tölvupóst á klifurhusid@klifurhusid.is 

Framhaldsgrjótglíma

Hentar þeim aðilum sem hafa klifrað í dágóðan tíma og vilja bæta sig enn meira. Gott aðhald og frábært tækifæri til æfa markvisst með hópi og þjálfara. Lagt verður fyrir 4 æfingar í viku, þar af ein með þjálfara.

Ef áhugi er til staðar endilega senda póst á klifurhusid@klifurhusid.is til að fá frekari upplýsingar.

 

 ATH - nauðsynlegt er að vera með virka áskrift til að skrá sig í hópinn.

56920215_10158359127938957_8816658214679478272_n

Á æfingunum er farið í upphitun, tækni, styrk og teygjur og reynt er að hafa æfingarnar fjölbreyttar svo iðkendur ættu að læra margar nýjar leiðir sem nýtast við klifuræfingar ásamt því að fá krefjandi æfingu!

Á Æfingaboulders námskeiðunum eru að hámarki 9 iðkendur í hverjum hóp per þjálfara til að tryggja gæði æfinga en er lágmarksskráning 6 manns.

STUNDATAFLA

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

Laugardagur

Sunnudagur

Byrjendagrjótglíma

20:00 - 21:30

Byrjendagrjótglíma

20:00 - 21:30

Æfingagrjótglíma

20:15 - 22:00

Æfingagrjótglíma

20:15 - 22:00

Scroll to Top