AFMÆLIS-, SKÓLA-
& VINNUSTAÐAHÓPAR
BÓKANIR
Bókanir fyrir afmæli fara fram hér: BÓKA HÉR
Til að bóka afmæli þurfa börnin að verða 7 ára á árinu.
Aðrar bókarnir og fyrirspurnir skulu berast á klifurhusid@klifurhusid.is eða í síma 553-9455 á skrifstofutíma frá kl. 10 – 16 alla virka daga.
UPPLÝSINGAR FYRIR AFMÆLIN
Hægt er að bóka afmæli á föstudögum kl 17:00 og 19:00 og á laugardögum kl. 13:00 og 15:00. Ekki er hægt að bóka afmæli utan þessa tímasetninga.
Afmælin eru haldin í fjölskyldusalnum í Ármúla 21 og hafa afmælisbarnið og vinirnir salinn út af fyrir sig. Afmælistíminn hefst á 60 mín í klifursalnum og síðan er gert ráð fyrir 30 mín í veitingar. Heildartíminn er 90 mínútur.
Verð: 27.900 kr ásamt (klifurskór eru innifaldir)
Mikilvægar upplýsingar:
Salurinn er frátekinn í 90 mínútur í senn fyrir afmælið. Hægt er að koma 15 mínútum áður til að undirbúa salinn.
Þjálfari verður á staðnum allan afmælistíman og tekur nokkra leiki í byrjun með börnunum til að búa til góða stemningu. Eftir það er frjáls leikur með tónlist í salnum.
Foreldrar/forráðamenn koma með eigin veitingar en borðbúnaður er á staðnum, svo sem diskar, glös og hnífapör, vatnskönnur og kökuplatti.
Hámarksfjöldi er 25 veislugestir.
Skila þarf bæði fjölskyldusalnum og veitingasalnum í því ástandi sem tekið er við þeim.
Gestir eru vinsamlegast beðnir að virða tímarammann.

SKÓLAHÓPAR
Hægt að koma með skólahópa til að klifra með þjálfara á virkum dögum. Skipulagið er þannig að fyrst er farið yfir öryggisatriðinn með hópnum og hann hefur síðan klukkustund til að klifra í salnum.
Skipulögð æfingastarfsemi hefst í húsinu kl. 15:00 og þá þurfa allir hópar að vera búnir að klifra. Fyrir stærri hópa, fleiri en 20 þátttakendur, er æskilegt að bóka tíma þannig að hópurinn sé að klára áður en húsið opnar fyrir almenning kl. 11:30.
Verð:
2000 kr. per þátttakenda ef þátttakendur eru færri 8
1500 kr. per þátttakenda ef þátttakendur eru 9-15
1000 kr. per þátttakenda ef þátttakendur eru fleiri en 16
*Leiga á klifurskóm er innifalin í verðinu.
AÐRIR HÓPAR
Það er hægt að bóka heimsóknir fyrir hópa eins og steggjanir, gæsanir, vinnustaðarhópa og fleiri á ólíkum tímum en til þess er best að hafa samband við okkur á klifurhusid@klifurhusid.is og athuga með verð og lausar tímasetningar.
Verðið fer eftir fjölda þátttakenda, lengd heimsóknarinnar og dagskrá.