Verðskrá thurasoley 16 desember, 2022

VERÐSKRÁ

KLIFURFÉLAGS REYKJAVÍKUR
FJÖLSKYLDUTÍMAR
Krakkaklifur

Börn undir 13 ára eru velkomin að klifra í fylgd með forráðamanni í barnasalnum okkar í Ármúla 21 á föstudögum og sunnudögum.
Sjá stundatöflu hér

7 ára og yngri…………………………………………. 950 kr.
8 – 12 ára…………………………………………….  1.500 kr.

Athugið að nauðsynlegt er að bóka tíma. Frekari upplýsingar má finna hér.

Nauðsynlegt er fyrir forráðamann að hafa þriggja mánaða kort eða meira til að klifra í stóra salnum í Ármúla 23.

Afslættir og Gjafabréf


Afslættir

  • Gefinn er 20% afsláttur af einu skipti í klifur fyrir nemendur  (framvísa þarf skólaskírteini), skáta, meðlimi björgunarsveita, AIMG og nemendur í fjallamennskunámi.
    • Gildir ekki fyrir staka skóleigu.
    • Gildir ekki af ungmennaverðskrá þar sem þau verð eru nú þegar á afsláttarkjörum.
  • Gefinn er 20% systkinaafsláttur af æfingagjöldum.
    • Reiknast á seinna systkinið sem er skráð.
    • Kemur sjálfkrafa upp í greiðsluferlinum.
    • Gildir ekki af stökum aðgangi.
  • Gefinn er 25% afsláttur af árskortum barna (yngri en 18 ára) sem eiga foreldri sem er einnig árskortshafi. Senda tölvupóst til að virkja afsláttinn.

Vinsamlegast sendið allar beiðnir um afslátt á klifurhusid@klifurhusid.is
______

Gjafabréf

Til að kaupa gjafabréf þarf að mæta í afgreiðslu Klifurhússins og greiða fyrir þá þjónustu sem á að gefa, t.d. námskeið, aðgang eða vöru. Starfsmaður útbýr gjafabréfið á staðnum. Ekki er hægt að fá rafrænt gjafabréf.

Gjafabréf fyrir námskeið
Ef gjafabréfið er fyrir námskeið þarf sá sem fær bréfið að stofna aðgang á Sportabler og senda tölvupóst á klifurhusid@klifurhusid.is til að skrá sig á námskeiðið. Það á einnig við um 10 skipta kortin.

Gjafabréf fyrir eitt skipti
Gjafabréf fyrir eitt skipti eða meira gildir í eitt ár og krefst ekki aðgangs að Sportabler.

Gjafabréf fyrir börn undir 13 ára
Fyrir börn undir 13 ára bjóðum við upp á krakkaklifur. Sjá stundatöflu hér og upplýsingar hér. Þar sem aðgangurinn hefur verið greiddur þarf ekki að bóka tíma á vefsíðunni og er því hægt að mæta eins og hentar samkvæmt stundatöflunni.

Gjafabréf fyrir vöru í Klifurbúðinni
Starfsmaður í afgreiðslunni útbýr gjafabréf með þeirri upphæð sem óskað er eftir.

AFSLÆTTIR
Scroll to Top