Skilmálar
Vefverslun Klifurhússins
Klifurfélag Reykjavíkur (kt. 410302-3810, Ármúli 23 108 Reykjavík) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar 2-3 virkum dögum eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður KFR hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Klifurfélag Reykjavíkur ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Klifurfélagi Reykjavíkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk að undanskildum bókum sem eru með 11% vsk. Pantanir sem á að senda til kaupenda eru sendar á pósthús á kostnað hans.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, ef viðkomandi vara er á útsölu eða á sértilboði við vöruskil þarf að framvísa kvittun til þess að sýna fram á upphaflegt verð vörunnar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í fimm ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Klifurfélag Reykjavíkur allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður
Það er öruggt að versla á www.klifurhusid.is. Greiðslur með greiðslukortum fara fram í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.