Páskafrí hefst á æfingum barna og unglinga sunnudaginn 29.mars og hefjast æfingar aftur strax eftir páska eða þriðjudaginn 7.apríl 🐥
Æfingagjöld voru reiknað í samræmi við þær æfingar sem falla niður. Endilega kynnið ykkur auglýstan opnunartíma Klifurhússins yfir páskana þar sem iðkendur geta komið og klifrað! Vert er að hafa í huga að iðkendur 12 ára og yngri verða að vera í fylgd með forráðamanni og eru með aðgang að fjölskyldusalnum í Ármúla 21. Iðkendur 13 ára og eldri hafa aðgang að salnum í Ármúla 23. Við vekjum athygli á því að aukaopnun verður í Krakkaklifurstímum um páskana!🐰
Klifurhúsið og Klifurfélag Reykjavíkur óskar öllum iðkendum sínum gleðilegra páska! 🤗
- 20 mars, 2026
- Óflokkað
Æfingar barna og unglinga – Páskafrí



