fbpx
Aðalfundur 2. apríl 2020 kl. 20:00 Klifurhusid 4 mars, 2020

Aðalfundur 2. apríl 2020 kl. 20:00

Boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 2 apríl 2020 kl. 20:00 í samkomusal Klifurhússins. Allir félagar í Klifurfélagi Reykjavíkur hafa atkvæðisrétt á fundinum (þeir sem eru með 3ja mánaða kort, hálfsárs- og árskort í Klifurhúsinu).
Verkefni aðalfundar eru:
a. Skýrsla stjórnar
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar síðsta árs
c. Lagabreytingar, tillögur berist stjórn með a.m.k. viku fyrirvara
d. Kjör formanns, framboð berist sjórn með a.m.k. viku fyrirvara
e. Kjör meðstjórnenda, framboð berist stjórn með a.m.k. viku fyrirvara
f. Kjör tveggja skoðunarmanna
g. Önnur mál.
Lagabreytingartillögur
Stjórn vill koma þeim upplýsingum til félagsmanna að lagabreytingartillögur skal senda á klifurhusid@klifurhusid.is eigi síðar en kl. 20:00 þann 26. mars
 
Framboð
Stjórn óskar eftir framboðum í eftirfarandi sæti. Tilkynningar um framboð skal senda á klifurhusid@klifurhusid.is eigi síðar en kl. 20:00 þann 26.mars. Frambjóðendur geta sent kynningarbréf um framboðið á sama netfang sem verður aðgengilegt á heimasíðunni Klifurhusid.is
 
  • Formann
  • 2 meðstjórnendur í 2ár
]]>