fbpx
Klifurhúsið er lokað til 19. október thurasoley 8 október, 2020

Klifurhúsið er lokað til 19. október

*Klifurhúsið is closed until the 19th of October to battle the surge in Covid-19 transmission rates.*

Allar æfingar falla niður til 19. október samanber fyrirskipunum sóttvarnarlæknis, almannavarna og Heilbrigðisráðuneytisins.

Tilmælin frá sóttvarnarlækni eru eftirfarandi:

  • Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
  • Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
  • Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
  • Takmörkun fjölda í búðum –einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
  • Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
  • Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
  • Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
  • Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.
  • Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.

]]>
Scroll to Top