fbpx
Skemmtimót + krakkamót á morgun! Elisabet Thea 17 febrúar, 2023

Skemmtimót + krakkamót á morgun!

SKEMMTIMÓT-FEB-HEIMASÍÐA-1

Kæru klifrarar,

Á morgun, laugardaginn 18. febrúar ætlum við að halda krakkamót kl 10:00 og skemmtimót kl 16:00.

Dagskrá krakkamótsins er eftirfarandi:

9:30 Húsið opnar
10:00 2. – 3. bekkur
11:30 4 – 5. bekkur
13:30 6. -7. bekkur

Allir fá þátttökuverðlaun. Engin sæti, stig eða pallur. Mótsgjald: 1500 kr + aðgangur í sal fyrir þau sem æfa ekki í Klifurhúsinu. Mótið er opið fyrir klifurum frá öllum félögum. Skráningu lauk tveimur dögum fyrir mót.

Skemmtimótið byrjar klukkan 16:00 og er fyrir 13 ára og eldri. Á mótinu verða rauðgráðaðar leiðir (5a/V1) og upp úr. Athugið, við munum ekki loka salnum í aðdraganda eða á meðan mótinu stendur. Leiðirnar verða aðeins í hluta salarins. Útdráttarverðlaun verða í lok móts. Aðeins þeir sem eru á staðnum geta unnið.Óþarfi er að skrá sig á mótið.

Fyrirkomulagið er eftirfarandi: 15-20 leiðir í undankeppni sem stendur í 2 klst. 5 einstaklingar komast áfram í úrslit í kvenna- og karlaflokki sem verða haldin sama kvöld, ca. 18:30.

Mótsgjald: 1500 kr (+ aðgangur í sal ef þú ert ekki með kort í Klifurhúsið).

Hlökkum til að hjá ykkur!

finnið okkur á instagram fyrir nánari upplýsingar: https://www.instagram.com/klifurhusid/

Scroll to Top