Unbroken mótaröðin 2026 Elmar Orri Gunnarsson 18 febrúar, 2026

Unbroken mótaröðin 2026

Unbroken black_salmon logo - on white background

Í ár verðum við með mótaröð í samstarfi við Unbroken. Sniðið er mínútumótsfyrirkomulag. Undankeppnin samanstendur af fjórum leiðum og fá klifrar 1 mínútu til þess að leysa hverja leið. Úrslitin snúast síðan um þrjál leiðir og fá þar keppendur 2 mínútur í viðureignina við hverja leið.

Undankeppnin er haldin í Ármúla 23 (gamla salnum) og úrslitin í Ármúla 21 (nýja salnum). Mótið hefur engin áhrif á opnunartíma og eru aðeins nokkrir veggir notaðir undir undankeppnina.

Stöðu mótaraðarinnar má fylgjast með í ÞESSU SKJALI. Samtals verða 6 mót á árinu og munu fimm bestu mótin telja til stiga.

Dagsetningar fyrir mótin munu koma smá saman inn á mótadagskrána hjá Klifursambandinu.

Scroll to Top