Aðalfundur KFR 2026 Klifurhusid 31 mars, 2026

Aðalfundur KFR 2026

Aðalfundur (1)

Boðað er til aðalfundar þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 20:00. Fundurinn verður í sal ÍSÍ, Engjavegur 6. Allir félagar í Klifurfélagi Reykjavíkur hafa atkvæðisrétt á fundinum (þeir sem eru með 3ja mánaða kort, hálfs árs- og árskort í Klifurhúsinu auk bundin áskrift).

Verkefni aðalfundar eru:

a. Skýrsla stjórnar.

b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar síðasta árs.

c. Lagabreytingar, tillögur berist stjórn með a.m.k. viku fyrirvara,  þ.e. fyrir kl 20:00 7. apríl.

d. Kjör formanns, kjör tveggja meðstjórnenda, og tveggja varamanna, framboð berist stjórn með a.m.k. viku fyrirvara, þ.e. fyrir kl 20:00 þann 7.apríl.

f. Kjör tveggja skoðunarmanna.

g. Önnur mál.

Lagabreytingartillögur: Stjórn vill koma þeim upplýsingum til félagsmanna að lagabreytingartillögur skal senda á klifurhusid@klifurhusid.is eigi síðar en kl. 20:00 þann 7.apríl.

Framboð: Stjórn óskar eftir framboðum sæti formanns, tvö sæti meðstjórnenda til tveggja ára ásamt því að kosið verður um tvo varamenn í stjórn.

Tilkynningar um framboð skal senda á klifurhusid@klifurhusid.is eigi síðar en kl. 20:00 þann 7. apríl. Frambjóðendur geta sent kynningarbréf um framboðið á klifurhusid@klifurhusid.is.

Scroll to Top