Toppstöðin – Staða mála Klifurhusid 17 febrúar, 2026

Toppstöðin – Staða mála

toppstodin

Kæru iðkendur og foreldrar,

Við viljum upplýsa ykkur um stöðu mála varðandi fyrirhugað framtíðarhúsnæði Klifurfélags Reykjavíkur í Toppstöðinni við Rafstöðvarveg 4. Nú hefur verið staðfest að farið verður í uppbyggingu húsnæðisins og mun Eignabyggð leiða endurbygginguna. Samhliða er unnið að því að finna starfsemi sem fellur að framtíðarsýn hússins sem miðstöð útivistar og jaðaríþrótta.

Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins eru í virku samtali við uppbyggingaraðila með það markmið að tryggja félaginu 2.500–3.000 fermetra framtíðaraðstöðu í húsinu. Slík aðstaða myndi marka stórt skref fyrir starfsemi félagsins og bæta verulega aðstöðu fyrir börn, unglinga og fullorðna iðkendur.

Við munum halda áfram að upplýsa ykkur þegar frekari skref skýrast.

Frétt um kaupin á Toppstöðinni: https://shorturl.at/ABreM
Heimasíða Toppstöðvarinnar : toppstodin.is

Kær kveðja
Klifurfélag Reykjavíkur

Scroll to Top